Gott og Vel - Vertu velkomin(n)

Gott & Vel sérhæfir sig í einföldum og ódýrum heimasíðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Boðið er uppá vefsíðugerð á frábæru verði auk þess sem að við skoðum öll verkefni á borð við lógó, auglýsingar og aðra grafíska hönnun.

Notast er við "Open Source" forritun og ókeypis "Web Template" á borð við vefkerfið ZIMPLIT til þess að halda kostnaði í lágmarki en með því er hægt að eignast einfalda en glæsilega heimasíðu á algjöru lágmarksverði.

Til að fá nánari upplýsingar um verð, vefumsjónarkerfið sjálft, og þau verkefni sem ég hef tekið að mér, endilega notaðu valmyndina hér til hliðar.

Ef þú hefur svo einhverjar fyrirspurnir eða ert ekki alveg viss hvað þú nákvæmlega vilt, endilega ekki hika við að senda mér línu á gottogvel@gottogvel.is og ég mun hafa samband fljótt.



Hugmyndin að Gott & Vel kviknaði sumarið 2008 þegar að ég var mikið í því að búa til vefsíður og ýmislegt grafíktengt fyrir hina ýmsu aðila. Tilhugsunin að búa til stílhreinar, einfaldar og vel framsettar heimasíður á verði sem enginn annar væri að bjóða uppá þótti mér mjög spennandi. Það var svo núna vorið 2009 að ég fór að skoða nýjustu verðskrár þeirra fyrirtækja sem sérhæfa sig í vefsíðugerð og þar með fór Gott & Vel af stað...