ZIMPLIT vefumsjónartól

ZIMPLIT er ókeypis "open source" vefumsjónartól sem er það einfaldasta sem völ er á í dag. Kerfið býður upp á fjölmargar einfalda og skemmtilega möguleika en vegna smæðar sinnar og einfeldni er það þó að mörgu leyti takmarkandi fyrir þá sem hafa hug á stórum vefsmíðum.

Kerfið má nota til þess að búa til nýjar undirsíður, breyta texta, setja inn myndir og video, endurskýra síður og búa til einfaldar valmyndir eftir að síða hefur verið sett upp. Á síðunni er þá lítill stjórnborðshnappur (eins og neðst á þessari síðu) þar sem smellt er til að fá stjórnendaaðgang að síðunni.

Tekið skal fram að Gott og Vel er ekki að selja útlitin eða hugvitið á bakvið ZIMPLIT kerfið. Einungis er um að ræða uppsetningu, aðstoð við notkun, vinnslu í kerfinu og annað slíkt sem allflestir finna sig knúna til að leita aðstoðar með.

Nauðsynlegt er að skýr skil séu gerð á milli þessara hluta enda bein áframsala á hugviti ZIMPLIT einfaldlega bönnuð.

Mælt er með því að viðskiptavinir kynni sér möguleika og viðmót kerfisins á síðunni www.zimplit.com



Kynntu þér málið nánar....

Hér má sjá þau útlit sem eru í boði.

www.zimplit.com